|  | Sunday, September 05, 2010
Jón Gunnarsson
Valin síða: UMRÆÐAN
UMRÆÐAN
13.March.2010 - Samstada
Auðvitað á að ríkja meiri samstarfsvilji á milli allra flokka á Alþingi. Það hefur lengi verið skoðun sjálfstæðismanna. Þetta á ekki síst við í Ice Save málinu þar sem sést hefur hverju samstaða getur skilað. Í því máli lýstum við því yfir snemma á síðasta ári að við værum tilbúin til að leggja okkar af mörkum með ríkisstjórninni við lausn málsins. Á það var ekki hlustað og því er staðan eins og hún er. Þetta mál hefur tekið alltof langan tíma ...
Meira...
01.March.2010 - Að komast úr sporunum
ÚR SPORUNUM! Íslensk heimili standa frammi fyrir miklum vanda vegna mikilla skulda og vaxandi atvinnuleysis. Stjórnvöld hafa ekki brugðist við vandanum með til raunverulegum aðgerðum og öll fyrirheit um títtnefnda skjaldborg heimilanna eru tóm. Það verður ekki lengur beðið með að taka á vanda heimila og fyrirtækja sem flestum tilvikum eru fórnarlömb efnahagskreppunnar á Íslandi. Þegar horft er til þeirra leiða sem færar eru, má þó aldrei mis...
Meira...
22.February.2010 - Að kjósa ófrið þó friður sé í boði
Mikil, breið og almenn samstaða er nú orðin um það innan sjávarútvegsins, hjá Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins að fara þess á leit að frumvarp um stjórn fiskveiða sem nefnt hefur verið „skötuselsfrumvarpið“ verði ekki afgreitt frá Alþingi. Varla hefur í aðra tíð myndast svo mikil samstaða á meðal hagsmunasamtaka í sjávarútvegi um beiðni af þessu tagi. Því verður ekki að óreyndu trúað að stjórnarmeirihlutinn virði þessa víðtæku...
Meira...
19.February.2010 - Ekkert kemur af sjálfu sér
Tvær björgunaraðgerðir hafa skilað árangri á Langjökli á skömmum tíma, sem hafa verið afar kröfuharðar og þarfnast björgunarfólks með mikla reynslu, þekkingu og þjálfun. „Í þessu tilfelli þá var vitlaust veður á jöklinum, skyggni frá því að vera ekki neitt upp í þrjá metra, það heyrðist ekki mannsins mál og varla í fjarskiptatækjunum – menn rétt sáu hver annan til að halda sinni leitarlínu,“ segir Jón Gunnarsson alþingismaður og fyrrverandi forma...
Meira...
11.February.2010 - Vanhæf ríkisstjórn
Fyrirsögnin hljómaði hátt í svokallaðri búsáhaldarbyltingu og hafði sín áhrif. Ekki ætla ég að draga fjöður yfir það að ýmislegt hefði betur mátt fara þegar við stóðum frammi fyrir þeim hörmungum sem á okkur dundu á haustdögum 2008. Engin er þar undanskilin í pólitíkinni, hvorki þáverandi ríkisstjórn eða forystumenn þáverandi stjórnarandstöðu. Gott dæmi um slíkt er algjör viðsnúningur fjármálaráðherra í allri sinni nálgun á málið. Alltof mikill...
Meira...
08.February.2010 - Breyttar aðstæður = ný vinnubrögð
Breyttar aðstæður = ný vinnubrögð Það hitti mig illa að heyra um skipverjann á Sturlaugi H. Böðvarssyni sem veiktist alvarlega þegar skipið var statt um 70 sjómílur vestur af Reykjanesi. Í fréttum kom fram að ekki hefði verið tiltæk þyrluáhöfn til að manna fylgdarþyrlu fyrir þá sem senda hefði mátt eftir skipverjanum. Vinnureglur Landhelgisgæslunnar sem segja fyrir um að ekki sé farið lengra út til hafs á einni þyrlu en 20 sjómílur til að trygg...
Meira...
28.January.2010 - Haft í hótunum
Nú eru skattahækkanir ríkisstjórnarinnar farnar að bíta almenning. Þegar hafa nauðsynjavörur hækkað og um mánaðarmótin munu landsmenn enn frekar finna fyrir aukinni skattpíningu. Viðbrögðin munu ekki láta á sér standa í minni neyslu og vaxandi óöryggi fyrirtækja og heimila. Það er í raun ótrúlegt að ríkisstjórnin skuli feta þessa braut á sama tíma og bent hefur verið á leiðir sem hefðu mildað allar hugmyndir um aukna skattbyrði á samfélagið samhl...
Meira...
27.January.2010 - Jákvæð teikn
Jákvæð teikn hafa komið fram í atvinnulífinu að undanförnu þrátt fyrir bölmóð ríkisstjórnarinnar vegna Ice Save. Á sama tíma og fulltrúar ríkisstjórnarinnar keppast við að tala hér allt atvinnulíf niður og stunda hræðsluáróður af mikilli elju eru öflugir aðilar búnir að taka ákvörðun um miklar fjárfestingar í íslensku atvinnulífi á næstu mánuðum. Stærsti fjárfestingasjóður Bretlands kemur að milljarða fjárfestingu vegna uppbyggingar gagnavers á S...
Meira...
21.January.2010 - Enstakt björgunarstarf-einstök tækifæri
Við Íslendingar búum við einstakar aðstæður þegar kemur að björgunarmálum. Þegar vá ber að höndum á lofti, landi eða láði er einvala lið tilbúið til að bregðast við til hjálpar samborgurum sínum. Þar höfum við yfir að ráða vel á þriðja þúsund manns í um 100 björgunarsveitum í öllum byggðum landsins. Allt starf þeirra er unnið í sjálfboðavinnu en þjálfun og menntun þeirra er eins og vel gerist hjá alþjóðlegum atvinnusveitum. Frumkvöðlastarfið var ...
Meira...
18.January.2010 - Ráðherraraunir
Jón Gunnarsson svarar Katrínu Júlíusdóttur Katrín Júlíusdóttir staðfesti í þættinum Á Sprengisandi að þau verkefni sem iðnaðarráðuneytið hefur unnið að með erlendum aðilum væru öll komin í óvissu. Ég lagði henni ekki þau orð í munn eins og hún fullyrðir í Fréttablaðinu. Það ætti að vera mjög hagkvæmt fyrir erlenda aðila að fjárfesta í íslensku atvinnulífi eins og staðan er í dag. Veik króna þýðir að þeir fá mikið fyrir sitt fé; vinnulaun og allu...
Meira...
11.January.2010 - Yfirlýsing iðnaðarráðherra
Í þættinum Á Sprengisandi sl. sunnudag staðfesti iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, að flótti væri brostinn í þá erlendu aðila sem iðnaðarráðuneytið hefur verið að ræða við um fjárfestingu í íslensku atvinnulífi. Hún hefur á undanförnum mánuðum ítrekað gumað að því í umræðum á Alþingi að horfur væru bjartar íslensku atvinnulífi og árangur af vinnu ráðuneytisins væri handan við hornið. Þessa stöðu skýrir ráðherrann með þeirri óvissu sem Ice Sa...
Meira...
10.August.2009 - Grunnurinn gleymist
Það hefur aldrei þótt góðri lukku að stýra að byggja hús sitt á sandi. Það uppbyggingarstarf sem framundan er í íslensku samfélagi er líkast uppbyggingu frá grunni. Ef rétt byggingarstæði er valið mun byggingin rísa fyrr og standa betur. Í umræðunni um málefni dagsins,s.s. Ice-Save, aðildarviðræðum við Evrópusambandið og fleiri slík stórmál gleymist gjarnan að ræða aðalatriðið, það á hverju á að byggja viðreisnina. Með hverju ætlar þessi þjóð að...
Meira...
07.July.2009 - Uggvænleg stefna
Á meðan við deilum um skyldur okkar til að greiða skuldir vegna Ice-save reikninga, eru aðrar og ekki síður alvarlegar aðstæður að skapast. Innlendir jafnt sem erlendir sérfræðingar segja að íslendingar eigi tækifæri til viðreisnar sem geri gæfumuninn. Þar er verið að vitna í auðlindir okkar til lands og sjávar. Viðskiptaráðherra tók undir með sérfræðingum OECD um að nýting náttúruauðlinda til stóriðju sé sá grundvöllur sem viðreisn okkar bygg...
Meira...
12.June.2009 - Nýting auðlinda=atvinna - Fréttablaðið
Í mínum huga er sorglegt að fylgjast með þróun umræðu um nýtingu náttúruauðlinda landsins til atvinnusköpunar. Öflugur sjávarútvegur hefur fært okkur þær útflutningstekjur og þau tækifæri sem við höfum notað til að byggja hér upp hágæða samfélag. Sóknarfærum og tækifærum til hagræðingar fækkar á þeim vettvangi.  Það má segja að kraftaverk sé hve vel að málum hefur verið staðið og skilar það okkur best reknu sjávarútvegsfyrirtækjum og ve...
Meira...
15.March.2009 - Úrslit í prófkjöri
Þá er lokið snarpri prófkjörsbaráttu okkar sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi. Baráttan var í senn lífleg og drengileg sem er mikilvægt þegar um er að ræða innbyrðis baráttu samherja. Ég vil þakka meðframbjóðendum mínum fyrrir það hvernig til tókst. Ég er sáttur við mína útkomu þó vissulega hafi ég stefnt að því að fara eitt þrep upp stigann. Í prófkjörum er ekkert gefið og baráttan hörð sem sést á niðurstöðu úr okkar prófkjöri. Eins og o...
Meira...
Eldri Fréttir