Fæddur í Reykjavík 21. sept. 1956. For.: Gunnar Jónsson (f. 7. júní 1933) rafvirkjameistari og k. h. Erla Dóróthea Magnúsdóttir (f. 20. maí 1936, d. 25. ágúst 1988) verslunarkona. K. Margrét Halla Ragnarsdóttir (f. 16. ágúst 1956) verslunareigandi. For.: Ragnar Benediktsson og k. h. Arndís Pálsdóttir. Börn: Gunnar Bergmann (1978), Arndís Erla (1982), Arnar Bogi (1992). Barnabörn: Jón Grétar(2004), Daði Bergmann(2005), Hildur Halla Bergmann(2008).
Próf frá Iðnskólanum í Reykjavík 1975. Próf í rekstrar- og viðskiptafræðum, EHÍ 1996.
Bóndi að Barkarstöðum í Miðfirði 1981-1985. Yfirmaður auglýsinga- og áskriftadeildar Stöðvar 2 1986-1990. Markaðsstjóri Prentsmiðjunnar Odda 1991-1993. Rak ásamt eiginkonu sinni innflutningsfyritækið Rún ehf. 1988-2004, og starfaði þar sem framkvæmdastjóri frá 1994. Framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2005-2007.
Í stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra 1982-1984. Formaður Flugbjörgunarsveitar Vestur-Húnavatnssýslu 1983-1985. Í stjórn Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík 1987-1991, formaður 1989-1991. Í stjórn Landsbjargar 1991-1999, varaformaður 1997-1999. Í landsstjórn aðgerðarmála björgunarsveita 1992-1997. Formaður Sjávarnytja, félags áhugamanna um skynsamlega nýtingu sjávarafurða, síðan 1995. Í stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar 1999-2005, formaður 2000-2005. 'i stjórn Slysavarnarskóla sjómanna frá árinu 2001. Formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi 2003-2008. Í stjórn Sunnuhlíðarsamtakanna í Kópavogi frá 2008.
Alþm. Suðvest. síðan 2007 (Sjálfstfl.).
Félags- og tryggingamálanefnd 2007-, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2007-, viðskiptanefnd 2007-2009.
Umhverfisnefnd 2008,
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2007-2009